kaupskilmálar

  1. Skilmálar

Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á vefsvæðinu www.urtasmidjan.is. Eigandi urtasmidjan.is er Urtasmiðjan ehf., kt. 540111-1700, Ytra-Gili, 605 Akureyri. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur Urtasmiðjunar annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og við tryggjum viðskiptavinum okkar örugg viðskiptinu á netinu.

 

  1. Skilagreinar

Seljandi er Urtamiðjan ehf., kt. 540111-1700. Kaupandi er sá aðili sem skráður er sem kaupandi á reikning. Kaupandi verður að vera a.m.k. 18 ára.

 

  1. Skilaréttur

Urtamiðjan skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru eða þjónustu fyrir kaupum í samræmi við skilmála þessa og gildandi rétt.

Almennur skilafrestur á vörum eru 30 dagar. Ef 30 dagar eru liðnir frá kaupum á vöru getum við ekki boðið upp á endurgreiðslu eða vöruskipti.

Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum umbúðum og í sama ásigkomulagi og þær voru við afhendingu.

Ef til endurgreiðslu kemur innan 30 daga frá kaupum, mun Urtasmiðjan endurgreiða kaupanda vöruna á sama hátt og viðskiptavinur notaði við greiðslu - þ.e. með bakfærslu á kredit- eða debetkort.

Kostnaður við endursendingu er á ábyrgð kaupanda. Ef vara reynist gölluð greiðir Urtasmiðjan fyrir endursendingu.

Það getur komið til að einstaka vörur séu einungis í boði á heimasíðu Urtasmiðjunnar. Þessar vörur geta komið í takmörkuðu upplagi og falla undir skilarétt Urtasmiðjunnar.

  

  1. Verð og verðbreytingar

Öll verð eru gefin upp í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Urtasmiðjan áskilur sér rétt til að ljúka ekki viðskiptum hafi rangt verð verið gefið upp. Verðbreytingar geta orðið fyrirvaralaust, t.d. vegna rangra upplýsinga eða skráningar. Verðbreytingar sem gerðar eru eftir að pöntun er staðfest eru óafturkræfar nema í ljós komi að um innsláttarvillu eða ranga skráningu hafi verið að ræða.

Við upplýsum viðskiptavini okkar um ef vara sem hefur verið pöntuð er ekki til á lager tímabundið og bjóðum upp á að hún verði send þegar hún verður aftur fáanleg. Ef vara er ekki til á lager til lengri tíma mun Urtasmiðjan endurgreiða viðskiptavini pöntunina að fullu hafi greiðsla farið fram.

 

  1. Persónuvernd

Seljandi fer með allar upplýsingar sem algört trúnaðarmál og eru þær eingöngu nýttar til að klára viðkomandi viðskipti. Upplýsingar um greiðslukortanúmer koma ekki til seljanda heldur eru á afmörkuðu vefsvæði viðkomandi greiðsluþjónustu.

 

  1. Sendingarkostnaður

 Þegar pantað er á urtasmidjan.is sendum við pöntuin þína með íslandspósti hvert á land sem er, burðargjald greiðist við pöntun vöru samkvæmt verðskrá íslandspósts. Viðskiptavinir erlendis greiða burðargjald samkvæmt verðskrá Íslandspósts

 

  1. Afhendingatími

Afhendingartími er að jafnaði 2-5 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. 

 

  1. Öryggi

Það er 100% öruggt að versla hjá www.urtasmidjan.is. Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslugátt Borgunar.

 

  1. Greiðslumöguleikar

Í netverslun Urtasmiðjunnar er boðið upp á að greiða með öllum helstu kredit- og debetkortum. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt hjá Borgun.

 

  1. Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum.

 

  1. Fyrirtækjaupplýsingar

Urtasmiðjan ehf.           

Ytra-Gili

605 Eyjafjarðarsveit

Sími: 463-1315

Netfang: urtasmidjan@urtasmidjan.is

VSK no: 106927