Flutningsskilmálar
Urtasmiðjan býður upp á fría heimsendingu innanlands, ef verslað er fyrir 8.000 kr eða meira.
Sendingarkostnaður við sendingu innanlands undir 8.000 kr er 1.250 kr.
Afhendingartími er að jafnaði 2-5 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Pöntun er send heim að dyrum kaupanda með Íslandspósti.
Hægt er að nálgast vörurnar á Ytra-Gili, Eyjafjarðarsveit, að kostnaðarlausu. Ef kaupandi vill nálgast vörurnar, hafið þá samband við Bylgju í síma 863-1315 (Vinsamlega hafið meðferðis kvittun um greiðslu).
Urtasmiðjan býður einnig upp á fría heimkeyrslu á svæðum með eftirfarandi póstnúmer: 600, 601, 603 og 605.
Í netverslun Urtasmiðjunnar er boðið upp á að greiða með öllum helstu kredit- og debetkortum. Greiðslur fara í gegnum örugga greiðslugátt hjá Borgun.