
Létt rakakrem
Þetta milda og létta dagkrem inniheldur m.a. þykkni úr íslenskum fjallagrösum, eini og blóðbergi, ásamt lofnarblómaolíu, sem gefa kreminu milda jurtaangan. Lífrænt kókossmjör, þistilolía og kvöldvorrósarolía næra og vernda húðina gegn þurrki og daglegu áreiti og gefa henni frísklegt og heilbrigt yfirbragð. Kamilluolía virkar róandi og heilandi á viðkvæma húð. Gott undirlag fyrir farða og hentar vel eftir rakstur bæði fyrir dömur og herra. Fyrir allar húðgerðir og allan aldur.
Stærð umbúða: 50 ml