Yndisleg húð-, bað-, eða nuddolía með morgunfrúar-, blágresis- og rauðsmára- olíum sem gefa húðinni mýkt og næringu og varna húðþurrki. Inniheldur einnig olíur úr rósum og lofnarblómi, sem gefa yndislega blómaangan og eru vinsælar í ilmolíumeðferð (aromatheraphy) vegna jákvæðra eiginleika á andlegt jafnvægi og hafa róandi áhrif á streitu. Slökunarolían er sérlega góð fyrir svefninn, gefur ró og vellíðan. Hún er oft notuð sem mýkjandi húðolía í staðinn fyrir body-lotion og einnig sem húðhreinsiolía. Olían er E-vítamín bætt.
Stærð umbúða er 100 ml.